þrógun hestsins
Frumhestararnir voru mjög ólíkir hestum eins og við þekkjum í dag.Hyracotherium var smávaxið dýr, 30-60 cm á hæð, og af tanngarði hans að dæma virðist hann hafa verið frekar ósérhæfður grasbítur, ólíkt nútímahestinum.
Þær meginbreytingar sem urðu á hestum frá frumhestinumHyracotherium til hesta nútímans eru einkum aukin líkamsstærð, hestarnir urðu leggjalengri, heilinn varð flóknari og stærri, og miklar breytingar urðu einnig á hófum. Nútímahestar hafa eina tá á hverjum fæti ólíkt frumstæðum áum hans. Að lokum má nefna að snoppan lengdist en það er megineinkenni á andlitsfalli nútímahesta.